Avents tekur að sér skipulagningu og framkvæmd viðburða fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Hvort sem um er að ræða brúðkaup, árshátíð, fyrirtækjaviðburð eða tónleika vinnum við með viðskiptavinum okkar að því að móta viðburðinn og sjáum til þess að hugmyndirnar verði að veruleika.
Að baki Avents stöndum við, Vera Rut og Guðný Georgiu. Við höfum báðar menntun í viðburðastjórnun og áralanga reynslu af skipulagningu fjölbreyttra viðburða. Við leggjum áherslu á skýra áætlun, góð samskipti og þau smáatriði sem gera gæfumuninn.
Við getum séð um skipulagninguna frá upphafi til enda eða tekið að okkur afmarkaða þætti. Þannig geta viðskiptavinir okkar notið viðburðarins með gestum sínum.
brúðkaup, afmæli, barnaafmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, gæsa- og steggjapartý, hátíðir, skírnir og fermingar, árshátíðir, útskriftir
Avents er viðburðaþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.