Egill Ploder

Skemmtun · Reykjavík

Um þjónustuna

Egill hefur starfað í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum frá árinu 2015 og er í dag dagskrárstjóri FM957 ásamt því að vera einn af stjórnendum morgunþáttarins Brennslunnar. Hann hefur mikla reynslu af því að koma fram fyrir framan fólk, bæði sem veislustjóri, viðburðarhaldari og sem tónlistarmaður með gamla 12:00 bandinu.

Sem veislustjóri leggur Egill sérstaka áherslu á eitt: að kvöldið fái topp einkunn frá öllum sem mæta á svæðið.

Góð stemning er alltaf í fyrsta sæti. Egill leggur mikið upp úr því að lesa salinn, halda uppi orkunni og sjá til þess að gestir skemmti sér – án þess að skipulagið og tímasetningar kvöldsins fari úr skorðum. Markmiðið er að finna rétta jafnvægið á milli þess að halda vel utan um dagskrána og skapa afslappaða, skemmtilega stemningu þar sem hlutirnir fá að gerast náttúrulega.

Undirbúningurinn skiptir þar miklu máli. Fyrir veisluna er farið vel yfir dagskrá, tímasetningar og óskir gestgjafa svo þeir geti sjálfir slakað á og notið kvöldsins þegar stóri dagurinn rennur upp.

Hvort sem um ræðir brúðkaup, árshátíð eða aðra stóra viðburði er markmiðið alltaf það sama:

Gott skipulag, mikil stemning og fullt dansgólf.

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, einkasamkvæmi, gæsa- og steggjapartý, hátíðir, árshátíðir, útskriftir, skírnir og fermingar

Egill Ploder er skemmtiþjónusta í Reykjavík og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Heimasíða þjónustuaðilans

Fleiri skemmtikraftar á höfuðborgarsvæðinu