Hreimur - skemmtiþjónusta í Reykjavík

Hreimur

Skemmtun · Reykjavík

Um þjónustuna

Hreimur Örn Heimisson er einn af þekktustu og reynslumestu söngvurum landsins, meðal annars þekktur úr hljómsveitinni Land og synir. Hreimur tekur að sér að gera Popquiz, partýtrúbb & mæta með hljómsveit t.d.

Hreimur Örn Heimisson hefur verið einn af ástsælustu söngvurum íslensks tónlistarlífs í yfir 25 ár. Hann sló í gegn með hljómsveitinni Land og synir og hefur síðan þá komið víða við í tónlistinni, bæði sem sólólistamaður og með fjölmörgum vinsælum hljómsveitum.

Hreimur hefur meðal annars verið hluti af Made in sveitinni, tekið þátt í Eurovision með Vinum Sjonna og flutt vinsæl þjóðhátíðarlög á borð við „Lífið er yndislegt“, sem hefur fyrir löngu fest sig í sessi meðal Íslendinga.

Með mikla reynslu, einstaka útgeislun og fjölbreytta lagaskrá er Hreimur frábær kostur fyrir árshátíðir, bæjarhátíðir, fyrirtækjaviðburði, brúðkaup og einkasamkvæmi. Hvort sem um er að ræða notalega tónlistarstund eða fjöruga skemmtun veit Hreimur hvernig á að skapa góða stemningu og eftirminnilega upplifun.

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, einkasamkvæmi, hátíðir, árshátíðir, útskriftir, erfidrykkjur, gæsa- og steggjapartý

Hreimur er skemmtiþjónusta í Reykjavík og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Fleiri skemmtikraftar á höfuðborgarsvæðinu