Rebekka er leikkona og spunaleikari hjá Improv Ísland. Rebekka hefur mjög góða reynslu sem veislustjóri og notar sterkan húmor og jákvæðan perónuleika til þess að passa upp á að kvöldið flæði og að allir njóti sín, bæði gestir og veisluhaldarar.
Rebekka hefur séð um hópefli hjá Improv Ísland og nær mjög vel til fólks. Hún kann að koma fólki í stuðið en líka halda sig til hlés ef salurinn eða kvöldið kallar á það.
Rebekka sér til þess að dagskráin renni áfram snuðrulaust, tekur jákvæð á móti hverju því óvænta sem kann að gerast, og býður upp á skemmtileg atriði þegar hentar; allt frá uppistandi yfir í rapp frá MCRappbekku.
Ef þú vilt koma fólki í stuð, hafa góða stemmningu og fá peppkonu aldarinnar, heyrðu þá í Rebekku fyrir veisluna þína.
brúðkaup, afmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, einkasamkvæmi, gæsa- og steggjapartý, skírnir og fermingar, árshátíðir, útskriftir, barnaafmæli, hátíðir
Rebekka Magnúsdóttir er skemmtiþjónusta í Kópavogi og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.