Tilvalinn salur fyrir stórar sem litlar veislur. Gott tjaldstæði með rafmagni. Hólf fyrir hross gegn vægu gjaldi
Funaborg er félagsheimili Funa og þar hefur Kvenfélagið Hjálpin einnig aðstöðu til fundahalda og samkoma.
Unnið hefur verið við endurbætur á félagsheimilinu og er vinna við það langt komin.
Hægt er leigja salinn til alls kyns uppákoma og er hann upplagður fyrir veislur allt upp í um 150 manns. Vinsælt er að halda ættarmót á Melgerðismelum og þá er hægt að tjalda á fjölnotasvæðinu vestan við salinn auk þess sem þar er fín aðstaða til leikja. Einnig eru beitarhólf fyrir hross gegn gjaldi

Funaborg er veislusalur á Norðurlandi og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.