Fundarsalur fyrir allt að 60 manns
Siglóveitingar hefur uppá að bjóða vel búna veislu- og fundasali sem henta jafnt fyrir stóra sem smáa viðburði. Við lítum svo á að okkur sé ekkert mannlegt óviðkomandi og því bjóðum við uppá sali sem henta fyrir allt frá drauma brúðkaupinu að virðulegum barrokk-tónleikum, góðum rokktónleikum eða frá litlum fundum að fjölmennum ráðstefnum. Salirnir eru vel búnir tækjakosti og er þráðlaust internet í boði fyrir alla gesti.
Á hótelinu er veislu- og fundarsalurinn Sunnubraggi sem tekur allt að 60 manns en í tveggja mínútna göngufjarlægð eru veitingahús okkar við höfnina með sali fyrir allt frá 10-150 manns.



brúðkaup, afmæli, barnaafmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, gæsa- og steggjapartý, skírnir og fermingar, árshátíðir, útskriftir, hátíðir
Sunnubraggi er veislusalur á Siglufirði og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.